Tuesday, August 30, 2011

Draumablogg!

Eftir að hafa lesið nokkrar svona "drauma" bloggfærslur þá ákvað ég að henda inn einni. Svona bara til að minna sjálfan mig á allt sem mig dreymir um! 

Kjóll úr TopShop, sá hann í smáralindinni einhverntíman þegar ég var að vinna og varð ástfanginn. Er til í gulu, bleiku og fjólubláu. :)

iPhone 4!!! Hver vill ekki svona spyr ég nú bara?

Sjúklega flottur bolur úr Oasis (fæst líka í Smáralindinni). Verð sko að eignast þennan!

Bleikir Adidas Superstar skór. Erum með mjög svipaða í Útilíf, þeir eru sko klárlega á "to do" listanum. (Eru reyndar bara til í barnastærðum - en hvað með það, mér tókst að koma mér í stærð 36 í gær - og þeir voru ekki of litlir.)
New York! Þarf ég að segja meira?
iPod Nano.  Minn iPod er orðin 5 ára gamall (sem mér skilst að sé bara nokkuð góð ending) og er orðinn svoldið þreyttur, fer alveg að koma tími á að endurnýja. Ég vissi reyndar að það er kominn nýrri kynslóð sem er svona lítil með snertiskjá, en ég held að ég myndi bara tína honum, setjast á hann eða eyðileggja með einhverjum öðrum hætti.

En jæja, núna er ég orðin alveg örmagna af þreytu. Svo ég ætla að fara að sofa, klára bloggið seinna. Morgunæfing með Kristínu á morgun :) 

Kv. Ágústa Íris

No comments:

Post a Comment