Tuesday, October 25, 2011

Hárgeðveiki!

Alltof langt síðan ég bloggaði síðast, enda get ég nú ekki sagt að mér gefist mikill tími í svona dunderí. Er búin að vera alltof upptekin síðustu daga. Það er alveg spurning hvort maður fái ekki taugaáfall út af öllu þessu stressi? Vona nú samt ekki, en ef maður gleymir að hvíla sig þá veit maður aldrei.

Ég er búin að vera að spá voðalega mikið í hári síðustu daga og vikur, enda liðið ár og aldir síðan ég fór síðast í klippingu og litun og er komin með vægast sagt mikla ljótu. En þessu verður kippt í lag á miðvikudaginn í næstu viku. Þá ætlar hann Stjáni á Sjoppunni að koma í smá mission með mér. Það verður eitthvað skrautlegt. Ég er svona eiginlega komin með leið á þessu venjulega og mig langar að taka eitthvað smá flipp. Hérna koma 2 hugmyndir sem ég hef svoldið horft á.


Ég er svo illa mikið að fýla hárlitinn hjá Rihönnu í þessu myndbandi. Var í ræktinni á hlaupabrettinu þegar ég sá þetta myndband fyrst, og ég fékk svo mikið "vá!" að ég þurfti að hætta að hlaupa til þess að horfa. Rihanna er annars eiginlega alltaf með flott hár, hún er klárlega nýja "hár ædolið" mitt. :)



Seinna myndbandið er svo af Cheryl Cole, hún er nú yfirleitt í þessum "venjulegu" litum en þarna hefur hún eitthvað breytt til og er með rauð/fjólbláan blæ - sem er alveg að gera sig. Sá þetta myndband fyrst í nóvember í fyrra og er búin að vera að pæla í þessu hári síðan þá - ekki nema bara ár af pælingum. Kannski komin tími á að hætta að pæla og byrja að framkvæma? Haha! :)

Ég setti líka inn linka fyrir neðan myndböndin af því að ég veit ekkert hversu góð gæðin eru á myndböndunum.  Hef aldrei póstað inn myndböndum hérna á bloggið svo þetta er smá test-run. 

Núna er klukkan orðin margt og komin háttatími á mig. Hardcore æfing í fyrramálið og svo ætla ég að njóta þess að eiga frídag, úff þetta veður sko ljúft! :D

Eitt svona myndband að lokum...


Hef alltaf verið svoldið spennt fyrir "slétta" hárinu sem hún er með í þessu myndbandi (Sjá mínútu 2:30). Voðalega basic og fínt - en kannski svoldið mikil vinna að halda því alltaf svona sléttu og fínu.

Kem vonandi með annað blogg fljótlega! 

-Ágústa Íris


1 comment:

  1. Hár,Hár! :D ég er að fara lita mig rihönnu litinn á morgun!! :D samt ekki tvískipt.. bara koparrauða sem er ofan á :D sjá hvernig það kemur út :D
    Eeeeeeeelska hárið á Rihönnu alltaf!! :D
    Njóttu frídagsins beibí! :D

    ReplyDelete